
Í samstarfi við fyrirtæki um allt land
Frá árinu 2021 höfum við aðstoðað fyrirtæki um allt land við að efla vellíðan starfsfólks með faglegri og persónulegri þjónustu – allt frá minni fyrirtækjum til stærri vinnustaða með fjölbreyttar þarfir.
Þjónusta
Hvert fyrirtæki hefur sínar þarfir. Þess vegna sníðum við þjónustuna að ykkar vinnustað, starfsfólki og markmiðum.
Hvort sem þið viljið efla vellíðan starfsfólks, gera vel við teymið eða bæta reglulegri vellíðunarþjónustu inn í vinnudaginn, hjálpar RÓ ykkur að finna lausn sem hentar.


Betri vinnudagur byrjar hér.

Segðu okkur hvað teymið þitt þarfnast – við sjáum um allt hitt.
Við skipuleggjum þjónustuna út frá þörfum og aðstæðum ykkar og fagfólkið okkar kemur beint á vinnustaðinn.


Einföld áætlun
Bókunarkerfi RÓ einfaldar allt utanumhald og gerir starfsfólki kleift að bóka tíma á fljótlegan og þægilegan hátt. Kerfið tengist Google Calendar og er hannað með öryggi og persónuvernd að leiðarljósi.
Óskalisti
Við erum þakklát fyrir þann mikla áhuga sem fyrirtækjaþjónusta RÓ hefur fengið og vinnum nú með sífellt fleiri fyrirtækjum um allt land.
Vegna mikillar eftirspurnar er takmarkað framboð á nýjum samstarfsplássum. Ef þið hafið áhuga á samstarfi við RÓ, skráið fyrirtækið á biðlista hér að neðan.
